Jú, það hefur
vantað eitt gott blogg hér lengi og ætla ég að reyna smá fyrir
mér...
Próflokahelgin er nýyfirstaðinn og var hún bara mjög góð,
á fimmtudaginn var seinasta prófið og var það góð tilfinning þegar
maður afhenti prófið til kennarans og var kominn í frí, um kvöldið
var á planinu að drekka eftir mikla þurrtartíð sem hafði staðið í
um tvo mánuði eða svo. Kvöldið var ágætt og byrjaði ég heima hjá
syni Eggerts honum Aðalsteini þar sem við komum nokkrir saman að
spila póker, þar var auðvitað drykkjan við völd og um tólf leytið
var farið með traustanum á apó að sækja stulla, hauk og grím og
leið lá uppá klúbbinn. Þegar þangað var komið var partyið víst búið
þannig að þar var stoppað stutt og leiðin lá niður í bæ. Fórum
aðeins fyrir utan gaukinn þar sem jólaballi Verzlunarskóla Íslands
var að ljúka, fólkið kom frekar þreytulegt út og tel ég að maður
hafi ekki misst af miklu eftir að hafa sleppt því ballinu. Það sem
eftir var af kvöldinu eyddi maður í bíl í leit af stuði en fundin
voru bara einhver tillaparty sem að maður stoppaði stutt í. Á
föstudeginum var bara notið þess að vera í fríi og slappað af en um
kvöldið var drykkjunni slegið á frest og eitthvað annað var gert
sér til dundurs. Svo kom laugardagurinn og þá var aftur tekinn
blendleiki. Byrjuðum hjá stulla að drinka svo um eittleytið lá
leiðina í bæinn. Fyrst var farið á eirí in íger (ísl. Ara í ögri)
og rokkað smá en það var ekki að fylla upp væntingar okkar strákana
svo að leið lá fyrir horn á prikið. Þar var sama tillarappara
stemmningin eins og vanalega þannig að áfram hélt ganga okkar upp
veg laugarinnar. Ákvað var að stoppa á hverfisbarnum en endinn á
röðinni náði alveg upp á óliver, þannig að útlitið var svart, eeeen
þá kom hinn ágæti nafni minn, maður peninganna og flexaði sínu
cashi og fyrr en varði vorum við komnir upp við barinn að telja
niður fyrir rússa kók (e. Russian cocaine) nokkur af þeim staupum
flugu í gegn og þá var maður ekki stoppaður af og dansgólfið réði
ríkjum til morguns, þaðan af var skriðið heim vesturgötuna með raut
og slísur af pronto. Komandi dagur var víst sunnudagur og hann var
þunnur. Núna síðustu daga hef ég bara verið að verkamannast og
keyra út öl til að þéna peningana.
En til að létta manni lund í vinnuvikunni voru litlujól
westboysa haldin heima hjá Atla Jónassyni með kökum og öllu
tilheyrandi. Þar var dregið hver myndi gefa hverjum og svo var
spilað bob. Þann sigur hafði brilla að lokum eftir æsispennandi
úrslitaleik og var hann því krýndur bobbi ársins. Ég lét mig
fljótlega hverfa eftir það og veit ekki því hvernig kvöldið
endaði...
Annars er þessi færsla tileinkuð 1300 því hann er núna að
reyna að taka yfir svövuveldinu og getið þið séð tröllamanninn í
öllu sínu veldi að að selja gallabuxur í skeifunni. Og hér með
skora ég á hann með næstu færlsu fyrir jól....
Verið sæl að sinni, kv. Hvörrinn...